Hugrenningar bollu
Átaksblogg
05.02.2007 21:37:32 / abba

Það er svo kalt

Úfffffffffffff

það er eiginlega ekki fyndið hversu kallt er hérna.  Axlirnar eru upp að eyrum og verkur í baki eftir því.  Mér er farið að ganga betur að vera svolítið holl.  Ég er farin að borða All-bran í morgun mat með súrmjólk (græni).  Grænmetið er meiriparturinn af disknum og kolvetni hafa fengið að minka til muna.

nammi er komið á bannlista og einungis sótastrím fær að koma inn fyrir mínar varir af því sem er með kolsýru í sér. 

Ég er búin að ákveða hvert umbunarkerfið mitt er.  fyrir hverja þá máltíð sem ég borða súper hollt þá fæ ég 20kr í minn eign sparibauk.  í hvert skipti sem ég kemst í gegnum heilan dag án þess að borða nami fæ ég 50 kr.  Hver sá dagur sem ég fer út að labba 50kr.  í hvert skipti sem ég klika á sömu atriðum þá fer úr bauknum sama upphæð svo þar er tvöfalt tap ekkert í baukin en sama upphæð uppúr honum.  Það verður gaman að sjá hvernig þetta mun ganga hjá mér.  það er eins gott að eiga alltaf klínk til að geta fylgst með hvernig gengur.  ef ég upp fylli allt á hverjum degi þá ætti ég að fá 220 kr á hverjum degi sem gerir 1540 á viku og að sjálfsögðu þá 6160 á 4 vikum.  það er mjög líklegt að ég eigi ekki eftir að taka eftir því að þessi peningur fari í baukin ef það verður alltaf tekið á hverjum degi og sett í.

en þetta er nóg í dag.  mér er farið að líða betur með þetta og bjartsínin er að gera út af við mig.

kveðja Abba
sara skrifaði
Geðveikt sniðugt með peninga hugmyndina þína ... ég var með 1000 kr fyrir hvert misst kíló en ég einhvernveginn stóð aldrei við það þannig að ég er að spá í að staðfæra þína hugmynd að mér ....

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.