Hugrenningar bollu
Átaksblogg
25.04.2007 23:52:55 / abba

Mig langar bara að segja ykkur hversu ömurleg ég er

 

Ég er ömurleg þið verðið bara að fyrirgefa mér með það. 

Ég stend ekki við neitt af því sem ég lofa sjálfri mér. 

ég borða ekki reglulega,

ég hreyfi mig ekki,

ég borða allt of mikið nammi,

mér finnst bjór allt of góður,

ég vinn allt of mikið,

ég læri allt of lítið

 

með þessu fittna ég bara og fittna.

 

Ég er ekki að sjá breytingu á því á næstunni svo ég læt ykkur kannski vita ef það verður breyting hjá mér einhver tíman við tækifæri.

 

Kveðja Abba sem er allt of lin við sjálfa sig. 


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 21:37:32 / abba

Það er svo kalt

Úfffffffffffff

það er eiginlega ekki fyndið hversu kallt er hérna.  Axlirnar eru upp að eyrum og verkur í baki eftir því.  Mér er farið að ganga betur að vera svolítið holl.  Ég er farin að borða All-bran í morgun mat með súrmjólk (græni).  Grænmetið er meiriparturinn af disknum og kolvetni hafa fengið að minka til muna.

nammi er komið á bannlista og einungis sótastrím fær að koma inn fyrir mínar varir af því sem er með kolsýru í sér. 

Ég er búin að ákveða hvert umbunarkerfið mitt er.  fyrir hverja þá máltíð sem ég borða súper hollt þá fæ ég 20kr í minn eign sparibauk.  í hvert skipti sem ég kemst í gegnum heilan dag án þess að borða nami fæ ég 50 kr.  Hver sá dagur sem ég fer út að labba 50kr.  í hvert skipti sem ég klika á sömu atriðum þá fer úr bauknum sama upphæð svo þar er tvöfalt tap ekkert í baukin en sama upphæð uppúr honum.  Það verður gaman að sjá hvernig þetta mun ganga hjá mér.  það er eins gott að eiga alltaf klínk til að geta fylgst með hvernig gengur.  ef ég upp fylli allt á hverjum degi þá ætti ég að fá 220 kr á hverjum degi sem gerir 1540 á viku og að sjálfsögðu þá 6160 á 4 vikum.  það er mjög líklegt að ég eigi ekki eftir að taka eftir því að þessi peningur fari í baukin ef það verður alltaf tekið á hverjum degi og sett í.

en þetta er nóg í dag.  mér er farið að líða betur með þetta og bjartsínin er að gera út af við mig.

kveðja Abba

» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 22:16:34 / abba

úff hve ónýtur maður er en það er fjansdans engin afsökun ég er bara löt og ekki sjálfri mér samkvæm:(

hæhæ
fyrir gefið að ég hef ekkert skrifað og það er ein ástæða fyrir því.

ég er búin að vera að kaffæra sjálfri mér í vinnu.  það er nefnilega ekki nóg að vera í skóla og með lítin yndislegan 3 ára strák heldur er ég líka að vinna 80% og með tómstundahóp ásamt 2 öðrum.  Ég fór suður í staðarlotu í heila viku og svo þegar ég kom heim þá var strákurinn minn veikur.  Ég þurfti að mæta í vinnuna og fullt af verkefna vinnu eins og gengur og gerist þegar maður er í fjarnámi.

Vegna þess hve mikklar annir eru hjá mér þá hefur mér ekki tekist að koma reglu á sjálfa mig með mataræðið og er ekki að fynna út hvað ég get borðað í morgun mat svo mér verði ekki alltaf óglatt þegar ég er búin að borða.  Það er virkilega óþolandi.

Ég var einnig að velta því fyrir mér í nótt þegar ég var að vinna hvernig maður ætti að haga mataræðinu þegar maður vinnur næturvinnu.  ég var svo sem ekkert óholl í nótt ég borðaði eina jógúrt með aspartami:) eina apelsínu og kaffi.  ekki nægilega mikil matur ég veit en þegar nótin kemur í mann þá hef ég allavea ekki matarlist.  mér fynst samt rosalega vont hvað ég á erfit með að hemja sjálfa mig því mér finnst hollur matur mjög svo góður.  það er bara stundum eins og maður viti ekki hvernig maður eigi að byrja. 

er eitthverstaðar hérna á landinu svona nammi afeitrunarstöð?  Ég þyrfti að fara í svoleiðis í svona 2 vikur þá væri ég að verða annsi góð.  ég er reydnar að fara að labba með vinnkonu minni á hverjum degi núna.  Við ættluðum að byrja í dag en hún fór í afmæli og ég var sofandi þegar henni datt í hug að fara út að labba svo við förum á morgun í staðin fyrripart dagsins þar sem ég er að fara á kvöldvakt annaðkvöld. 

en mér veitir ekki afþví að þið fylgist með mér og mjög svo gjarnan myndi mér vannta ráð til að ýta virkilega á eftir mér.  Getur maður ekki sett upp svona umbunar og refsunar töflu eins og maður gerir stundum við börnin sín þegar maður er að reyna að fá þau til að taka til eða minka sjonvarpsgláp.  humm ég þarf að hugsa út í það.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 22:03:11 / abba

Á morgun er dagurinn

í dag hef ég leift mér eitt og annað sem ekki mun meiga næstu vikurnar en samt ekkert svo mikið.  ég fékk mér jólakökur heima hjá ömmu og kex í vinnunni.  reyndar fékk ég mér ekkert nammi því mig langaði bara hreynlega ekki í það.

Þetta mun kanski hljóma skríngilega en ég hlaka svoldið til næstu vikna og mánuða því mér líður ekki vel eins og ég er í dag.  Ég er sko í laginu eins og ég sé komin 6 mánuði á leið. 

Ég ætla mér á næstu mánuðum að losna við 15 kíló þá er ég komin niður í 70 kíló.  þegar ég er komin niður í það þá ættla ég að athuga hvernig ég er og hvort ég þurfi að losna við meira.  Ég hef sko ekki verið undir 80 kílóunum í 3 ár og mér finnst það full mikið.  en í kvöld ætla ég að fá mér bjór og njóta þess því það mun ég ekki gera á næstunni aftur:D

Því bjór er nú víst ekkert annað en fljótandi vatn.  svo í fyrramálið verður farið í það að drekka helst 2 lítra af vatni og fá sér all-bran í morgunmat.  og á morgun mun ég velta því fyrir mér hvað ég ætla að taka með mér í nesti á mánudagin svo ég þurfi ekki að borða þennan mat sem er í vinnunni minni sem er mjög svo miss hollur.

kveðja í dag Abba

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 21:01:56 / abba

Ég ættla að byrja alveg upp á nýtt

Það hefur ekkert gengið hjá mér og í raun hef ég bara fitnað.  svo ég tók þá ákvörðun að byrja upp á nýtt.  þessvegna eiddi ég öllum þeim færslum sem voru komnar hérna inn sem voru reyndar ekki margar en það skiptir engu.

núna þegar jólin verða búin þá verður harkan sex.  Ég ætla að hætta að borða nammi ég ættla að hætta að drekka gos.  ég ættla að skera allt sykrað í burtu og skera kolvetnin niður hjá mér.  ég þarf að losna við svona 15-20 kíló.

Ég er nefnilega 160 á hæð og 85 kg (ekki nákvæm vikt)

ég ættla að taka 2 vikur af kolvetnasnauðu fæði og taka svo smávegis inn aftur en ekki mikið.  Ávextir verða teknir inn aftur og lítilegt af öllu þessu kolvetna dóti sem maður getur alveg verið án í miklu magni eins og pasta, kartöflum, brauði, hrísgrjónum og öllu því gumsinu.

Úf nú verður fjör á bæ að ákveða hvað á að vera í matin þegar ég er ein heima með strákinn minn og þegar ég er að vinna því þó ég vinni á sjúkrahúsi þá er nú ekki hollasti maturinn í veröldinni þar.

En nú kveð ég heyrumst seinna BÆBÆ

» 2 hafa sagt sína skoðun